Á aðalhæð Safnahússins á Húsavík er sýningin Mannlíf og Náttúra - 100 ár í Þingeyjarsýslum. Í sýningunni er fléttað saman náttúrugripum og munum úr byggðasafni Þingeyinga svo úr verður einkar athyglisverð sýning þar sem gestir upplifa sterkt samspil manns og náttúru í Þingeyjarsýslum á tímabilinu 1850 til 1950.
Á jarðhæðinni er svo fastasýning sjóminjasafnsins en hún var opnuð í apríl 2002. Sýningin gefur glögga mynd af þróun útgerðar og bátasmíði í Þingeyjarsýslum allt frá árabátaöldinni fram til vélbátaútgerðar.
Tvær sérsýningar eru að jafnaði í húsinu; myndlist, saga, ljósmyndir eða annað áhugavert efni.