náttura og dýralíf
Norðurstrandarleið kemur þér í kynni við ósnerta náttúru sem er rík af dýralífi. Hvalir, selir og fuglar hafast við á sumrin á norður Íslandi. Hjálpaðu okkur að viðhalda samlífi sem einkennist af virðingu og sjálfbærni í þessu fallega landslagi. Hin hreina náttúra býður þér að hægja á þér og hlaða batteríin og það er ógleymanleg upplifun að hitta fyrir og fylgjast með villtum dýrum í sínu náttúrulega umhverfi – það er eftirminnilegast þegar dýrin eru ekki trufluð og hegða sér náttúrulega.
Það er ein einföld regla: Vertu viss um að skilja við staðinn eins og hann var þegar þú komst.
Gróður
Íslenski gróðurinn er einstaklega viðkvæmur vegna kaldrar veðráttu, stutts sumars og vonds jarðvegs. Ef plöntur eða mosi verða fyrir skemmdum getur það tekið mörg ár að jafna sig og valdið jarðvegsrofi! Gætið þess á göngu að skemma ekki gróður og að fylgja merktum slóðum.
Utan vega akstur
Að fara keyrandi af veginu telst telst utan vega akstur og slíkt er bannað með lögum. Smellið hér til þess að fá frekari upplýsingar um það að keyra Norðurstrandarleið.
Rusl
Ekki skilja eftir þig rusl! Vinsamlegast taktu með þér ruslið í næsta þorp og fáðu íbúa til þess að benda þér á stað til þess að losa rusl og/eða endurvinna það! Flusi eða hýði af ávöxtum á borð við banana má heldur ekki henda í náttúrunni vegna þess að kuldinn gerir það að verkum að eyðing þess tekur óralangan tíma. Ef þú vilt kynna þér þetta betur má lesa meira á vef Umhverfisstofnunar.
Umgengni við villt dýralíf
Nokkrar einfaldar reglur ættu að hjálpa þér að upplifa dýr á norðurslóðum í sínu náttúrlega umhverfi á sem eðlilegastan hátt: