Minjasafnið á Akureyri er í elsta bæjarhluta Akureyrar, Innbænum og Fjörunni. Í sýningarsafnsins gefa innsýn sögu íbúa svæðisins með fjölbreyttum og fjölskylduvænum sýningum. Skelltu þér í búðarleik, prófaðu trommusettið eða skelltu þér í búning. Miðinn gildir á 5 söfn og tilvalið að grípa Safnapassa fjölskyldunnar með í ferðalagið.
Minjasafnið á Akureyri er handhafi Íslensku safnaverðlaunanna 2022.
Sýningar:
Fyrir framan safnið er einn elsti skrúðgarður landsins, rúmlega aldargamall, sem er tilvalinn áningarstaður með bekkjum, borðum og stólum og útileikföngum. Í garðinum stendur Minjasafnskirkjan byggð 1846 sem er leigð út fyrir athafnir og tónleika.
Minjasafnið er á sömu lóð og Nonnahús og einungis 200 metrum frá Leikfangahúsinu.
Opnunartími:
1.6.-30.9.: Daglega frá 11-17.
1.10-31.5.: Daglega frá 13-16.
Verð:
2300 kr. fyrir 18 ára og eldri – Börn 17 ára og yngri ókeypis, Öryrkjar ókeypis. Eldri borgarar 1300 kr.
Miðinn gildir allt árið á 5 söfn: Minjasafnið á Akureyri, Nonnahús, Leikfangahúsið, Davíðshús og Laufás.